TG raf býður upp á að hanna og teikna raflagnateikningar í byggingar, þar á meðal í einbýlishús, raðhús, parhús, fjölbýlishús og sumarhús, hvort sem um nýbyggingu sé að ræða eða breytingar/stækkanir á eignum.
Í raflagnahönnun er lagður grunnur að lagnaleiðum, rofum og tenglum, töflum, lýsingu og smáspennukerfum, þ.á.m. hússtjórnarkerfi og öryggiskerfi.